laugardagur, mars 03, 2007

Tarot spil...

Ég hef tvisvar á ævinni látið leggja fyrir mig tarot spil og í bæði skiptin hafa lagnirnar verið sannspáar...ef svo má segja.

Seinna skiptið var samt mikið ótrúlegra og ólíklegra til að rætast en viti menn.....sko...þannig er mál með vexti að þegar við Ingunn fórum til Rómar í nóvember og vorum að rölta um í áttina að Piazza Navona sáum við mann sem var að leggja Tarot spil og Ingunn vildi endilega prófa....hún byrjaði og það var ótrúlega margt sem gaurinn sagði við hana sem stóðst akkúrat á þeirri stundu...ég er svo fegin að það er kominn mars til þess að sjá hvort hinir hlutirnir rætist hjá henni....en þeir eru á góðri leið með að gera það...dúddírúddí!!!!

En...svo var röðin komin að mér...og gaurinn sér eitthvað spil sem hann talar um og segir mér að í byrjun árs (2007), svona frá janúar-apríl komi maður inn í mitt líf, maður úr fortíð minni, einhver sem ég átti í sambandi við eða átti góð samskipti við. Hann sé ekki mikið breyttur og komi með einhverjum hætti aftur inn í mitt líf. Ég fussaði og sveiaði og taldi ekkert til í þessu en Ingunn var með tvær hugmyndir, útilokuðum strax aðra en hin var svo ólíkleg og ótrúleg að ég hugsaði ekki einu sinni um hana.

Nema hvað....fyrir 4 dögum fékk ég sms....frá manni úr minni fortíð, manni sem ég átti gott samband við fyrir 11 árum og ég hef ekki heyrt frá honum né nokkuð til hans spurt í 9 ár!!!!!!
En þarna var það, sms, algerlega óvænt og ég svaraði því og fékk þá óvænna símtal frá þessum sama manni. Hann er ekki íslenskur og fór þvílíkar krókaleiðir til þess að finna mig....eftir öll þessi ár. Síðastliðin kvöld höfum við spjallað mikið á msn og unnið upp tapaðan tíma og þetta er hreint út sagt svo ótrúlega lygilegt.....sérstaklega vegna Tarot-spilanna og mannsins sem lagði þau, og að það skuli hafa verið í Róm vegna þess að minn tími með þessum manni var einmitt á Ítalíu!!!!

Nú hef ég ekki verið trúgjörn á stjörnuspár og Tarot spil og þess háttar en verð víst eitthvað að endurskoða það!!!

En hvað þýðir þetta?? Eru þetta örlög??? Eru Tarot spil ekki bara leikur??

Ég varð bara og er enn alveg orðlaus.....gerist ekki oft að ég haldi kjafti..hehehehe.....

4 Comments:

At 9:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

dadada...en óvænt og gaman, nú fer þetta að verða spennandi. Gaman að þetta skuli hafa ræst ;-)
Ég veit ekki hvort þú fékkst póstinn minn um að skypast...sendi hann eftir að þú kvittaðir í gestó hjá okkur...ertu nokkuð komin með nýtt e-mail mín kæra

 
At 7:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

spennó spennó.
Ég hef alveg tröllatrú á Tarot spilum og hef heyrt ótrúlegustu spár sem maður hélt að kæmu aldrei fram en viti menn!!!!!!!!

Kveðja Köben

 
At 10:40 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vá, ég hef nú fremur litið á Tarot spil sem afþreyingu en spádóm en held ég endurskoði hug minn upp frá þessu. Þetta er aldeilis sérstakt! Vonandi spáði hann bara fleiri góðum hlutum fyrir þig ef hann ætlar að reynast svona sannspár :)

Kv. Beta

 
At 5:15 e.h., Blogger Unknown said...

Jæja jæja.... spes þetta... ;) Hlakka til að heyra í þér við tækfæri;)

 

Skrifa ummæli

<< Home