Listin að pakka
Tölvupóstur þeytist nú á milli Vestmannaeyja, Reykjavíkur og Danmerkur þar sem nú styttist í Köben-ferð okkar vinkvennanna!!
Innihald skeytanna er meðal annars hvað er leyfilegt að taka með sér í handfarangur, hvaða íslenska nammi vill Dóra Hanna fá, hvar á að borða, reyk eða reyklaust, hvert á að fara að djamma, hvar og hvað á að versla og síðast en ekki síst HVERNIG VERÐUR VEÐRIÐ????? Og í framhaldi af því HVERNIG FÖT ÆTLIÐ ÞIÐ AÐ TAKA MEÐ???
Upphefst þá mikil umræða og lýsingar á jökkum og buxum, sparifötum, bolum og öðrum fatnaði þeysist á milli tölvanna.
Sumar ganga svo langt að strauja fötin sem eru svo heppin að fá að koma með til Köben, ég er alveg saklaus af þeim ósið, aðrar eru að hamast við að elda og frysta svo kallinn og börnin fái nú örugglega hollan og góðan mat meðan húsmóðirin sukkar í Kóngsins Köben, og ég sit bara hér í kæruleysi og blogga!!!!
Brottför eldsnemma á fimmtudag og stelpan ekki farin að setja eina flík í tösku...það er af sem áður var...en til að valda ekki vonbrigðum...þá er ég nú búin að hripa niður á miða það sem ég ætla að hafa með.
Veðurspáin var ekki svo glæsilega fyrir nokkrum dögum en eftir að hafa rætt ærlega við veðurguðina hafa þeir séð aumur á okkur og spá núna sól og hita....en ekki hvað!!!
Svo í stað þess að skjótast inn á pöbb og forðast að vökna verðum við að skjótast á pöbbann og kæla okkur niður vegna hita...jiiiiii hvað þetta verður gaman!!!!!
2 Comments:
Þetta verður geðveikt gaman súperskvísa!!!
Ertu ekki farin að pakka, hehe...er nýbyrjuð en var eins og þú búin að skrifa miða. Þorði ekki annað en að pakka aðeins í kvöld því það er svo margt spennandi í imbanum á morgun, landsleikurinn og svo auðvitað Magni ;-)
Ég er búin að geyma alla póstana okkar, langar að eiga þetta til seinni tíma, haha...bara fyndið!
Gangi þér að pakka og mundu bara að hafa ferðatöskuna vel rúma undir það sem þú kaupir þér í Köben ;-0
Hlakka til að knúsa þig skvísa eftir rúman sólarhring í Köben.
Ó já hvað þetta verður gaman....jájá...það verður hálftóm taskan svo ég geti fyllt hana í H&M beib...
Jiiiii hvað ég hlakka til að knúsa þig líka og kjafta og allt saman....
Skrifa ummæli
<< Home