fimmtudagur, júlí 27, 2006

Ein-ar

Grétan mín fór til pabba síns og Birnu á mánudaginn og ætlar að vera í viku...hún ætlar að koma heim á sunnudaginn....þannig að mamman er búin að vera ein í kotinu, lítið að gera í vinnunni og sá hún fram á ein-mana-tíð framundan....EN svo er nú ekki....þannig er það nú í pottinn búið að ég á þessar líka frábæru tvær single vinkonur sem eru í sömu stöðu ég...börnin þeirra líka hjá feðrum sínum og við erum búnar að eyða miklum tíma saman undanfarið....erum búnar að fara á Hornið að borða, á Café París að fá okkur kaffi, í sund, horfa saman á Rockstar og fræðast um Chippendale stripparana á netinu, fara á Segafredo að fá okkur kakó og brauð með hráskinku, kíkja í blöðin og kjafta, rölta Laugarveginn og óska Hrafnhildi til hamingju með búðina sína, Frú Fiðrildi, og í kvöld er stefnan tekin á bíó og kannski kaffihús á eftir!! Best að taka allan pakkann í einu!!!

Sem sagt....Öflugt félagslíf einstæðra "barnlausra" mæðra og þvílíkt sem er gott að eiga góðar vinkonur sem hægt er að hlæja og flissa með, grínast og gantast og skemmta sér afar vel....ég hef meira að segja komist að því að ég er farin að geta gert grín að sjálfri mér og hætt að taka mig svona svakalega alvarlega...það er mikill léttir og mikið gaman!!

Þessar vinkonur mínar hafa báðar létt mér lundina og hvetja mig áfram og styðja mig í því sem ég geri og því sem ég geri ekki....takk elskurnar....þið eruð bara bestar!!!!XOXOXOXOX

7 Comments:

At 12:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æ takk elskan. Veit ekki alveg hvar ég væri án þín..... þú ert yndislegust :) Takk fyrir að vera til.
Kv. Ingunn

 
At 10:09 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já sys það er alveg ómetanlegt að eiga góðar vinkonur, og hvað þá að eiga líka frábæra fjölskyldu :) við erum vel settar.. hlakka til að sjá þig um helgina kiss kiss Heiða systir

 
At 7:48 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 8:42 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jæja sys, núna er mánudagur eftir versló og ég hef ekki ennþá séð ykkur :( Það hefur nú sennilega verið crazy að gera hjá ykkur um helgina.. en við sjáumst vonandi bráðum :) Kveðja frá Norðurlandinu

 
At 2:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 6:51 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 
At 4:19 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.

 

Skrifa ummæli

<< Home