mánudagur, ágúst 01, 2005

Listin að pakka niður!!!!!

Ó já....það er sko ákveðin kúnst að pakka niður.....ég pakka til dæmis alltaf OF miklu niður þegar ég fer til eyja...og pabbi spyr alltaf hvort ég sé að flytja aftur heim!!!!! Eins og það sé ekki hægt að þvo á "Hótel mömmu"...en ég segi líka alltaf "allur er varinn góður" og barninu fylgir náttúrulega fatnaður fyrir alls konar veður, sama á hvaða árstíma maður fer á eyjuna fögru.

Svo er ég náttúrulega með svo mikla fullkomnunaráráttu og allt verður að vera á sínum stað og svona þannig að einfaldir hlutir eins og að pakka niður fyrir 2 vikur á sólarströnd (bikiní, léttar buxur, pils, kjólar, hlýrabolir, skór, sólarvörn og aftersun) verður heilmikið mál fyrir mig...hehehhe!!!!
Ég byrjaði semsagt að tína ofan í töskuna í fyrradag og eyddi svo gærdeginum og morgninum í að spá og spekulera hvort hitt og þetta væri ekki nauðsynlegt eða mætti missa sín....þetta er náttúrulega rugl!!!!
En svona er ég í hnotskurn.....velti einföldustu hlutum fyrir mér þar til þeir eru orðnir afar flóknir og ég orðin snarrugluð í hausnum......ó já lífið er ekki alltaf einfalt!!!!

2 Comments:

At 6:05 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Veeeeesen! Íris ef ég væri þú og þú værir ég og við værum saman,nei bara grín. Farðu bara með ekki neitt og eyddu svolitlum penning þarna úti og láttu splæsa á þig á klúbbunum og veitingarhúsunum.Komdu svo heim brún og sælleg eftir dvölina.Kossar og knús .Herdís

 
At 11:15 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æi þekki þetta vel, það er eins og þú sért að lýsa mér í leiðinni :-0
Veit ekki hvernig þetta verður núna þegar börnin eru orðin tvö!
Ætli ég þurfi ekki bara að taka heila vél á leigu næst þegar við skreppum á klakann :-0
Hafið það frábært í útlandinu...
hlakka til að fylgjast með ykkur krúsídúllurnar okkar!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home