mánudagur, janúar 29, 2007

Fræðsla, menning og næturlífið

Merkilegt hvað allt þarf alltaf að gerast á sama tíma....t.d í síðustu viku þurfti ég að fá pössun fyrir Grétu 3 kvöld í röð!!!!!!!!!!!

Sem betur fer var eitt af þeim kvöldum henni í hag en á fimmtudagskvöldið var fór ég á fyrirlestur hjá Hugo Þórissyni sálfræðingi. Fyrirlesturinn var um samskipti foreldra og barna, ég les stundum heimasíðuna hans og hlusta stundum á hann í Ísland í bítið og hef gaman af. Auðvitað er margt sem hann er að segja bara almenn skynsemi og margt annað er spark í rassinn, en bókin sem hann byggir á er mjög góð og gerir manni bara gott að lesa hana, og það sem er best við allt þetta er að maður velur svo bara úr það sem maður telur að henti manni og barninu manns best!!!

Á föstudagskvöldið fór ég með Óla bróður og nokkrum vinnufélögum hans í Iðnó að sjá leikritið Best í heimi og það var hin besta skemmtun. Þetta sýnir svolítið hvernig við íslendingar tökum á móti útlendingum og hvernig útlendingar sjá Ísland. Leikendurnir voru fjórir útlendingar sem tala frábæra íslensku og það var afar skemmtilegt að upplifa hinar ýmsu aðstæður í gegnum þeirra túlkun!!!

Á laugardagskvöldið skellti ég mér með Ingunni og Birgittu á Pizza Hut og svo fórum við í afmæli hjá félaga okkar en það var haldið á Sólón...skemmtum okkur konunglega þar, þangað til svona um kl.01 en þá vorum við að verða eldri borgarar þar inni svo við skelltum okkur aðeins í bæinn og fórum á nokkra staði en fundum okkur hvergi...svo mín var bara komin heim og uppí rúm kl 03.00...ótrúlega huggó bara....

...og enn og aftur sannast það að ber er hver að baki nema sér bróður eigi og það er gott að eiga góða að, Diddi passaði á fimmtudagskvöldið, amma Þórey á föstudagskvöldið og Óli bróðir á laugardagskvöldið...takk elskurnar fyrir aðstoðina!!!!!!!

1 Comments:

At 11:31 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mikið ertu heppin að eiga svona greiðan aðgang að góðu fólki sem getur létt undir með þér... Allt mitt fólk er úti í Eyjum og eina manneskjan sem er virkilega pössunarfær nálægt mér er tengdó. Og ekki getur maður látið hana passa lon og don..:) Er alltaf að spá í að fá mér pössunarpíu svo við hjónin gætum kannski skroppið í bíó eða eitthvað, en voðalega finnst mér eitthvað erfitt að láta verða af því...

 

Skrifa ummæli

<< Home