miðvikudagur, október 25, 2006

Tapað/Fundið

Tapast hefur rúmlega þrítug jákvæð, reglusöm, afar geðgóð, samviskusöm og skynsöm kona.

Fundist hefur í staðinn jafngömul kona sem virkar þó nokkuð yngri, er pirruð, geðvond, kærulaus og langt frá því að vera hvort heldur samviskusöm né skynsöm.

Ef einhver hefur eitthvað til þeirrar týndu spurt eða heyrt er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að segja henni að drullast aftur þangað sem hún var og koma hinni týpunni frá völdum áður en það verður um seinan!!!!

4 Comments:

At 7:25 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þrítug jákvæð, reglusöm, afar geðgóð, samviskusöm og skynsöm kona... hún verður klárlega í Eyjum um helgina þessi;)
Kveðja
Fríða systir;)

 
At 7:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hvaða hvaða elskan mín. Er bara allt í volli?????
Ertu ekki að nenna að læra eða hvað er málið???
Sakna þín mikið dúllan mín. Reyni að senda þér hlýja strauma til að ylja þér við í kuldanum heima :-)
Lovjú
Kv Harpa

 
At 5:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hei hei skvís, er þetta bara svona týpískur einn af þessum dögum sem manni finnst ekkert ganga og allt ómögulegt ;-O
Það þekkja þetta allir, vona nú samt að þessi dag-ur/ar séu á enda í bili. Þú ert svo frábær Íris mín og þó það komi svona dagar hugsaðu þá um þá sem eftir eiga að koma og þér finnst þú frábær!
Ég er svo stolt af þér Íris mín og vildi að ég væri nær þér ;-0
Spjöllumst sem fyrst...

Kossar og knús frá okkur öllum og gangi þér exstra vel í öllu amstrinu,
Dóra Hanna og gengið

 
At 2:05 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hvada ;hvada eins og sagt er!vid finnum fullt a svona tindum salum i henni 'ameriku en tho enginn sem jafnast a vid thig elsku iris min.Thu ert i godum malum og matt alveg vera orlitid kaerulaus annad slagid svo kemurdu bara aftur OKEI vid erum ad shopppppppa svolitid herna og er a usa lyklabordi eins og tu serd .vonandi skilurdu eitthvad. bestu kvedjur fra storu systir og mer; thin vinkona Herdis.

 

Skrifa ummæli

<< Home