sunnudagur, apríl 24, 2005

Furðufréttir!!

Góðmenninn...

...sá í fréttunum í gær konu sem tók það að sér að gefa tveimur tígrisdýra-ungum brjóst þar sem þeir voru teknir frá mömmunni því hún át einn ungann!!! Ungunum gekk illa að drekka úr pela og því bauðst þessi annars ágæta kona til að gefa þeim brjóst þar sem hún átti barn fyrir 7 mánuðum og átti nóg af mjólk fyrir alla!!! Hvar værum við án þessa góða fólks???

Illmenninn...

..eru því miður líka til...menn fyrir norðan fara með ungan mann lengst úr í rassg...láta hann afklæðast og skjóta hann svo með loftbyssu...hér á litla landinu okkar..hvað er að gerast hér eiginlega?? En jæja, svo játa mennirnir, sem eru jafnframt á skilorði, og þá mega þeir bara fara...já hérna hér...ég segi nú ekki annað!!! Finnst ykkur þetta hægt?? Brjóta bara af sér, játa það og þá er málið dautt...(eða svo gott sem).
Sem betur fer þekki ég engann sem er svo illa innrættur, né nokkurn sem þarf að eiga samskipti/viðskipti við svona fólk (vona ég)...Hvert stefnir þetta allt saman?

Furðumenninn...

...eru til dæmis þau sem ég sá í fréttunum í kvöld......5 ára barn í skóla í Flórída fær æðiskast og lögreglan er kölluð til og hún handjárnaði barnið!! Og það tók alveg þrjá stóra og stæðilega lögreglumenn til!!!! Hvað haldiði að myndi gerast ef þetta yrði gert hér???

Já það er margt skrýtið í kýrhausnum!!!!!

1 Comments:

At 10:25 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hæ Íris Dögg.
Rakst á link á síðuna þína hjá Rögnu Jenný og varð náttúrulega að kíkja í heimsókn og kvitta fyrir komuna. Gaman að lesa bloggið þitt og ég á eftir að kíkja hingað í mínum daglega bloggrúnt :)
Bestu kveðjur, Beta.

 

Skrifa ummæli

<< Home