Mesta krútt í heimi...
...mun vera dóttir mín....
Ég skrapp í þvottahúsið í gærkvöldi og þegar ég kom upp á stigapallinn sá ég hana skjótast inn en svo sá ég miða á stigapallinum. Á honum stóð bara Íris (með hennar skrift...hehehe) svo ég tók hann upp og sneri honum við og þá stóð: Bara að láta þig vita að þú ert best!!!!
Mömmuhjartað hætti næstum að slá og tárin byrjuðu að skríða fram...þessi elska og svo er mamma bara alltaf að læra...eða elda...eða vaska upp...eða setja í þvottavélina!!
Hún hlakkar meira til þess að ég klári skólann heldur en að við förum í sumarfrí (til Tenerife)!!!!!
Mikið hlakka ég líka til og hef svarið það við Guð og menn að þá verð ég besta mamma í heimi!!!
5 Comments:
Þú átt þetta svo sannarlega skilið- og ég veit það að þú ert besta mamma í heimi. Get ekki séð að skólaganga þín hafi skaðað barnið þitt á nokkurn hátt:) Þið eruð báðar yndislegar*
Knús og kossar frá Eyjum til ykkar mæðgna*
Mússí múss
Meiri molinn hún dóttir þín :)Mikið er hún ljúf og þroskuð að hafa vit á að gera svona sætan hlut! Yndisleg
En yndislegt... enda ertu best...
Þú ert ótrúlega dugleg og örugglega besta mamma í heimi hvort sem þú ert á kafi í námi eða ekki...
Takk fyrir síðast elsku vinkona.
Kv. Sara G.
Úff er alveg með tárin í augunum.
Kv. Ingunn
úfff...verð að taka undir síðasta comment...er sjálf með tárin í augnum bæði vegna dóttur minnar og því að vera svooooo stolt af henni og já...sjálfri mér...en ekki síður af ykkur sem hvetjið mig áfram og styrkið með commentum ykkar...takk takk!!!
Skrifa ummæli
<< Home