föstudagur, desember 15, 2006

PRÓFLOK :)

Jibbýýýýýý.....mín bara búin í prófum...reyndar í fyrrakvöld en....þau eru semsagt búin og nú á sko bara að njóta frelsisins.....

Fór í klippingu í gær....þvílík breyting.....lét Óla klippa og klippa og erum bara ótrúlega sátt við þetta....alveg snoðað í hnakkanum...undir sko....under-cut...eins og þetta heitir á fagmáli..muahhhhh...vorum í 4 tíma á stofunni hjá Óla þar sem okkur er troðið inn á milli kúnna....takk Óli minn fyrir að gera okkur mæðgur sætari :)

Fór upp í rúm kl 22.50 í gær, sem hefur ekki gerst í margar margar vikur...mikið sem það var notalegt....fór samt ekki beint að sofa...ó nei....byrjaði á ítölsku bókinni sem ég keypti í Róm og er búin að vera að bíða og bíða eftir að geta byrjað að lesa.....ennþá notalegra!!

Gréta fór til pabba síns í dag og ég notaði tækifærið og eyddi 3 tímum í Smáralindinni....byrjaði að leita að einhverjum jólagjöfum, er búin að kaupa handa pabba, keypti handa mömmu, búin að græja Grétu svo nú eru það bara bræður mínir....úfffff....alltaf svolítill hausverkur...veit reyndar hvað ég ætla að gefa Didda en Óli.....úffffff.......hehehehe...hann er reyndar búinn að koma með nokkrar óskir....ætli maður verði ekki bara við þeim....huhummm!!

Er svo að fara að fara að taka til...jiiii...heimilið er í rúst....og lítið sem ekkert jólaskraut komið upp....er að reyna að gera það upp við mig hvort ég á að nenna að skreyta því eftir viku förum við til eyja og komum ekki aftur fyrr en 2.jan......og þá eru bara 4 dagar eftir af jólunum....hummmmm....ætla að sofa á þessu.....og tek örugglega svo eitthvað upp á eftir!!!

Annað sem ég er að reyna að gera upp við mig.....er...þar sem ég er ein heima....hvort ég eigi að fara út í kvöld og fagna próflokunum eður ei???? Ha? Humm? Ha??

2 Comments:

At 11:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ooooooooooo hvað ég öfunda þig mikið er alveg komin með nóg af prófverkefninu mín og hlakka ekkert smá til að komast í frí sem er þó ekki fyrr en 22.des.

Kveðja Lilja

 
At 11:16 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með próflokin dúllan mín! Ég vona að þú hafir sko aldeilis nýtt kvöldið í að halda upp á próflokin;-

 

Skrifa ummæli

<< Home